Áfrýjanir lágmarksaldurs á TikTok

Farðu í kafla


Hvað er aldursáfrýjun á TikTok?  •  Hvað gerist eftir að eiginleiki er fjarlægður af reikningnum þínum  •  Hvernig á að áfrýja  •  Hvernig við notum upplýsingarnar sem þú sendir til TikTok ef þú áfrýjar  •  Hvernig við geymum upplýsingarnar þínar ef þú áfrýjar  •  Hvernig við deilum upplýsingum þínum ef þú áfrýjar  •  Hvernig á að fá afrit af tilteknum gögnum ef aðgangur þinn að aldurstakmörkuðum eiginleika er fjarlægður  •  Upplýsingar fyrir foreldra, forráðamanneskjur og aðra fullorðna aðila sem er treystandi  •  Hvers vegna er mikilvægt að unglingurinn þinn gefi upp raunverulegan fæðingardag  •  Hvernig geturðu stutt unglinginn þinn  •  Hvernig við notum upplýsingarnar þínar ef þú hjálpar unglingnum þínum að áfrýja  •  Hver er réttur þinn gagnvart persónugögnum þínum?  •  Hvernig á að hafa samband við okkur um málefni sem tengjast persónuvernd 






Hvað er aldursáfrýjun á TikTok?


Við gætum fjarlægt aðgang þinn að ákveðnum eiginleikum ef við teljum að þú uppfyllir ekki lágmarksaldurskröfur, þar á meðal:
•  Beint streymi (lágmarksaldur 18 ára og eldri)
•  Kaupa Myntir (lágmarksaldur 18 ára og eldri eða 19 ára í Suður-Kóreu)
•  Senda og taka á móti beinum skilaboðum (lágmarksaldur 16 ára og eldri)

Ef þú telur okkur hafa gert mistök geturðu sent áfrýjun. Frekari upplýsingar um lágmarksaldurskröfur okkar í Viðmiðunarreglum fyrir samfélagið.

Ef reikningurinn þinn hefur verið bannaður vegna þess að við teljum að þú uppfyllir ekki lágmarksaldur til að nota TikTok, lærðu meira um áfrýjanir undir lögaldri.






Hvað gerist eftir að eiginleiki er fjarlægður af reikningnum þínum


Ef aðgangur þinn að aldurstakmörkuðum eiginleika er fjarlægður færðu tilkynningu næst þegar þú opnar TikTok sem lætur þig vita af þessari breytingu á reikningi. Þú hefur 180 daga frá þeim degi sem aðgangur þinn var fjarlægður til að leggja fram áfrýjun. Þú getur samt fengið aðgang að TikTok reikningnum þínum og, ef við á, hlaðið niður öllum endurspilunum Í BEINNI eða beinum skilaboðum sem brjóta ekki í bága við Viðmiðunarreglur fyrir samfélagið okkar. Ef þú áfrýjar ekki, eða ef áfrýjun þín er ekki samþykkt, muntu ekki hafa aðgang að aldurstakmarkaða/aldurstakmörkuðu eiginleikanum/eiginleikunum.






Hvernig á að áfrýja


Ef þú telur að aðgangur þinn að aldurstakmörkuðum eiginleika hafi verið ranglega fjarlægður, láttu okkur vita með því að senda inn áfrýjun.

Til að senda áfrýjun skaltu:
1. Opna tilkynninguna í TikTok appinu.
2. Pikka á
Áfrýjun til að hefja áfrýjunarferlið.
3. Fylgja leiðbeiningunum sem eru veittar. Við munum láta þig vita um niðurstöðuna.

Það fer eftir aldri þínum og staðsetningu, þú þarft að staðfesta aldur þinn með einum af eftirfarandi valkostum:

Sjálfsmynd með auðkenni (ef þú ert 16 ára eða eldri)
Til að áfrýja með því að nota sjálfsmynd með auðkenni þarftu að gefa upp eftirfarandi:
•  Mynd af opinberum skilríkjum þínum.
•  Sjálfsmynd af þér með (a) sömu opinberu skilríkjum og (b) blað sem með skýrum og læsilegum hætti tilgreinir stakan kóða sem við sendum þér í áfrýjunarferlinu.

Þú getur hulið hvaða hluta af skilríkjunum þínum sem þú hefur lagalegan rétt eða skyldu til að gera.

Mynd með foreldri/forráðamanneskju (ef þú ert 16 til 17 ára)
Til að áfrýja með því að nota mynd með foreldri eða forráðamanneskju verður þú að gefa upp eftirfarandi:
•  Mynd sem inniheldur þig og foreldri þitt eða forráðamanneskju sem er eldri en 25 ára. Ef foreldri þitt eða forráðamanneskja er ekki til staðar geturðu spurt annan áreiðanlegan fullorðinn aðila sem er eldri en 25 ára, til dæmis afa eða ömmu, kennara eða frænku/frænda. Andlit ykkar beggja verða að vera skýr og sýnileg.
•  Foreldri þitt, forráðamanneskja eða annar áreiðanlegur fullorðinn aðili verður að horfa í myndavélina og halda á blaði með eftirfarandi atriðum skrifuðum á skýran og læsilegan hátt:
   ༚  Nefndu blaðið „TikTok sönnun um aldur“
   ༚  Fæðingardag þinn
   ༚  Stakan kóða sem við sendum þér í áfrýjunarferlinu

Kreditkortaheimild (ef þú ert 18 ára eða eldri)
Til að áfrýja með kreditkortaheimild þarftu að gefa upp kreditkortaupplýsingar þínar. Lítið og tímabundið gjald verður skuldfært til að staðfesta kreditkortið þitt. Þú munt fá öll gjöld endurgreidd sem stofnað er til.






Hvernig við notum upplýsingarnar sem þú sendir til TikTok ef þú áfrýjar


Ef þú sendir inn áfrýjun munum við biðja þig um að veita upplýsingar til að staðfesta fæðingardag þinn svo að við getum ákveðið hvort við eigum að veita aðgang aftur og upplýsa þig um ákvörðun okkar, þar sem við höfum lögmæta hagsmuni af því að halda TikTok samfélaginu öruggu og koma í veg fyrir misnotkun á þjónustu okkar samkvæmt persónuverndarstefnu okkar. Við þurfum mismunandi upplýsingar eftir því hvernig þú hefur valið að staðfesta fæðingardag þinn.

Hafðu í huga:
•  Ef áfrýjun þín er samþykkt munum við uppfæra fæðingardaginn fyrir reikninginn þinn.
•  Ef áfrýjun þín er ekki samþykkt gætum við uppfært fæðingardag þinn eftir því hvaða upplýsingar þú sendir inn. Fæðingardagur þinn er ekki sýnilegur öðrum á TikTok.
•  Við munum aðeins nota upplýsingarnar sem þú sendir til að staðfesta aldur þinn og til að upplýsa þig um ákvörðun okkar. Ef þú velur til dæmis að leggja fram myndir munum við ekki sýna þær á TikTok prófílnum þínum eða annars staðar á TikTok.






Hvernig við geymum upplýsingarnar þínar ef þú áfrýjar


Um leið og áfrýjunarferlinu lýkur munum við hefja ferlið við að eyða upplýsingum sem þú sendir, þar á meðal sjálfsmyndum og myndum af skilríkjunum þínum.

Ef áfrýjun þín er ekki samþykkt:
•  Ef þú ert á aldrinum 13 til 17 ára, munum við eyða endurspilunum þínum Í BEINNI 30 dögum frá þeim degi sem þær voru búnar til. Þú getur beðið um endurspilanir þínar Í BEINNI sem þú hefur enn aðgang að.
•  Ef þú ert á aldrinum 13 til 15 ára höldum við upprunalegri ákvörðun okkar um að fjarlægja aðgang þinn að beinum skilaboðum, en þú getur samt beðið um beinu skilaboðin þín.

Ef áfrýjun þín er samþykkt:
•  Svo framarlega sem þú ert með TikTok reikning, munum við halda skrá yfir fæðingardag þinn, staðfestingu sem þú áfrýjaðir, hvernig þú áfrýjaðir og niðurstöðuna.
•  Við munum ekki geyma afrit af skilríkjum þínum, ef þau eru gefin upp, en við munum geyma upplýsingar sem tengjast auðkenningarathugun sem þjónustuveitan okkar hefur framkvæmt. Til dæmis hversu oft skilríki þín voru skoðuð ef fyrsta áfrýjun þín var ekki samþykkt og þegar þjónustuaðili okkar sendi okkur niðurstöðu staðfestingar.
•  Ef þú ákveður að eyða TikTok reikningi þínum verða öll ofangreind gögn (ásamt restinni af gögnunum) send til eyðingar.
•  Við munum búa til skrá sem gerir okkur kleift að fylgjast með stöðu og upplýsingum um áfrýjun þína. Við munum geyma skrána í 90 daga og eyða henni síðan.






Hvernig við deilum upplýsingum þínum ef þú áfrýjar


Háð því hvernig þú hefur valið að staðfesta fæðingardag þinn munum við deila upplýsingunum sem þú sendir með þjónustuaðilum okkar, sem hjálpa okkur að athuga hvort skilríkin þín séu ósvikin eða framkvæma tímabundna kreditkortaheimild. Við munum ekki deila þessum upplýsingum með þriðja aðila utan áfrýjunarferlisins.






Hvernig á að fá afrit af tilteknum gögnum ef aðgangur þinn að aldurstakmörkuðum eiginleika er fjarlægður


Ef þú missir aðgang að aldurstakmörkuðum eiginleika geturðu notað tólið okkar
Niðurhal gagna til að biðja um gögnin þín, þar á meðal endurspilanir Í BEINNI og bein skilaboð. Þú hefur 30 daga til að biðja um endurspilanir þínar Í BEINNI eftir að þær hafa verið búnar til og 113 daga (eða 180 daga ef þú ert staðsettur á Evrópska efnahagssvæðinu (EES), eða 23 daga í Bandaríkjunum) til að biðja um beinu skilaboðin þín. Hafðu í huga að þú getur aðeins halað niður gögnum sem brjóta ekki í bága við Viðmiðunarreglur fyrir samfélagið.

Lærðu meira um réttindi þín og val í persónuverndarstefnu okkar.






Upplýsingar fyrir foreldra, forráðamanneskjur og aðra áreiðanlega fullorðna einstaklinga


Ef við teljum að einhver sé ekki nógu gamall til að nota aldurstakmarkaðan eiginleika munum við fjarlægja aðgang hans en hann gæti áfrýjað. Ef þú ert foreldri, forráðamanneskja eða annar áreiðanlegur fullorðinn aðili unglings sem á reikning sem við bönnum eða fjarlægjum aðgang að aldurstakmörkuðum eiginleika getur hann beðið þig um að aðstoða sig við að leggja fram áfrýjun.






Hvers vegna er mikilvægt að unglingurinn þinn gefi upp raunverulegan fæðingardag sinn


Við erum staðráðin í að veita upplifun sem hæfir aldri, svo það er mikilvægt að unglingurinn þinn gefi upp raunverulegan fæðingardag. Til dæmis leyfum við yngra fólki á TikTok ekki að nota ákveðna eiginleika. Nánar um persónuvernd og öryggisstillingar unglinga.






Hvernig þú getur stutt unglinginn þinn


Við mælum með því að þú skoðir Handbók forráðamanneskju til að læra meira um TikTok og verkfærin og stjórntækin sem við höfum útbúið til að tryggja öryggi samfélagsins okkar og fá almennar upplýsingar um algengar áhyggjur fólks tengdar netöryggi. Ef þú skoðar þessi gögn með unglingnum þínum geturðu stuðlað að samræðum um öryggi á TikTok.






Hvernig við notum upplýsingarnar þínar ef þú hjálpar unglingnum þínum að áfrýja


Ef unglingurinn þinn er gjaldgengur til að áfrýja ákvörðun okkar um að fjarlægja aldurstakmarkaðan eiginleika, munum við gefa þeim nokkra valkosti til að staðfesta fæðingardag sinn. Í sumum löndum er einn af valmöguleikunum
mynd með foreldri/forráðamanneskju en þá þarf að hlaða upp mynd af unglingnum með foreldri, forráðamanneskju eða öðrum áreiðanlegum, fullorðnum einstaklingi sem staðfestir fæðingardag viðkomandi.

Ef unglingurinn þinn biður þig um að koma fram á mynd til að áfrýja banninu:
•  Við munum aðeins nota myndina til að ákveða hvort við samþykkjum eða samþykkjum ekki áfrýjun unglingsins þíns. Við treystum á lögmæta hagsmuni okkar, og unglingsins þíns, sem lagalegan grundvöll til að vinna úr myndinni í þessum tilgangi. Nánar tiltekið treystum við á lögmæta hagsmuni af því að halda samfélagi okkar öruggu og koma í veg fyrir misnotkun á þjónustu okkar með því að veita unglingnum þínum aðgang að aldurstakmörkuðum eiginleikum aðeins ef viðkomandi staðfestir fæðingardag sinn.
•  Við munum ekki nota myndina í neinum öðrum tilgangi og munum ekki sýna hana neins staðar á TikTok.
•  Myndin verður geymd af þjónustuveitu þriðja aðila.
•  Um leið og áfrýjunarferlinu er lokið munum við hefja ferlið við að eyða myndinni.






Hver er réttur þinn gagnvart persónulegum gögnum þínum?


Ef þú býrð á Evrópska efnahagssvæðinu, í Bretlandi eða Sviss og unglingurinn þinn áfrýjar banninu sínu með því að senda mynd af sér með þér mun þessi mynd innihalda persónulegar upplýsingar þínar og TikTok á Írlandi og TikTok í Bretlandi verða sameiginlegir ábyrgðaraðilar hvað myndina varðar, eins og sú ábyrgð er skilgreind í persónuverndarstefnu okkar.

Til að tryggja að myndin njóti fullnægjandi verndar þegar hún er flutt til þjónustuveitu þriðja aðila sem við notum, sem mun geyma hana, munum við nota staðlað samningsákvæði Evrópusambandsins samkvæmt 46. grein GDPR. Þú getur beðið um afrit af þessum stöðluðu samningsákvæðum í gegnum vefeyðublaðið okkar.

Þú hefur rétt á að:
•  Andmæla notkun okkar á myndinni þinni og biðja okkur um að takmarka vinnslu okkar á henni.
•  Biðja okkur um að veita þér aðgang að myndinni.
•  Biðja okkur um að eyða eða leiðrétta myndina.
Til að nýta þessi réttindi geturðu haft samband við okkur í gegnum vefeyðublaðið okkar

Þú átt líka rétt á að leggja fram kvörtun til írsku gagnaverndarnefndarinnar ef þú býrð á EES-svæðinu og hjá eftirlitsyfirvaldi á þínum stað.






Hvernig á að hafa samband við okkur um málefni sem tengjast persónuvernd


Til að spyrja okkur um persónuverndarstefnu okkar geturðu haft samband við okkur í gegnum vefeyðublaðið okkar.

Ef þú býrð í EES, Bretlandi eða Sviss geturðu haft samband við gagnaverndarfulltrúa okkar í gegnum vefeyðublaðið okkar.


Var þetta gagnlegt?