Horfa á myndbönd í spilunarlista

Spilunarlistar efnishöfundar er eiginleiki á TikTok sem gerir efnishöfundum kleift að flokka opinberu myndböndin sín til að auðvelda þér að horfa á tengd myndbönd í ákveðinni röð. Athugaðu: Ekki er í boði fyrir alla að búa til spilunarlista eins og er.



Horfa á myndbönd í spilunarlista úr myndbandi


Á meðan þú horfir á myndband gætirðu séð Spilunarlisti neðst á myndbandinu. Það þýðir að myndbandið er á spilunarlista og kannski viltu horfa á öll tengdu myndböndin.
1. Pikka á Spilunarlisti neðst á myndbandinu í TikTok appinu.
2. Pikka á eitthvað myndband á spilunarlistanum til að byrja að horfa.
3. Þú getur flett upp eða niður til að horfa á fleiri myndbönd á spilunarlistanum.
Athugaðu: Efnishöfundurinn getur breytt röð myndbanda á spilunarlistanum.



Horfa á spilunarlista af prófíl einhvers annars


Ef þú ferð á prófíl einhvers annars sérðu spilunarlista viðkomandi efst í myndbandsflipanum.
1. Farðu á prófíl efnishöfundar með spilunarlistum í TikTok appinu.
2. Í myndbandsflipanum skaltu pikka á spilunarlista til að hefja spilun.
3. Héðan geturðu:
    •  Pikkað á Spilunarlisti neðst á myndbandinu til að skoða hin myndböndin á spilunarlistanum.
    •  Flett upp eða niður til að skoða fleiri myndbönd á spilunarlistanum.



Var þetta gagnlegt?