Greiðslur fyrir seríu

Fara í kafla 


Hvernig útborganir til þín eru reiknaðar  •  Hvernig hægt er að skoða útborganir  •  Hvernig á að móttaka greiðsluna þína 






Hvernig útborganir til þín eru reiknaðar


Þú getur valið verð seríunnar í meðfylgjandi fellivalmynd og getur upphæðin verið frá 0,99 USD til 189,99 USD. Útborganir eru reiknaðar eftir fjölda þeirra sería sem keyptur er aðgangur að. Nánari upplýsingar um greiðslur til þín. Hafðu í huga að þú getur ekki breytt verði seríu eftir að hún hefur verið birt.






Hvernig hægt er að skoða útborganir


Fyrsta dag hvers mánaðar færðu tilkynningu um uppsafnaðar útborganir til þín frá fyrri mánuði.

Til að skoða greiðsluna þína skaltu:
1. Pikka á
Prófíll neðst í TikTok-appinu.
2. Pikka á hnappinn
Valmynd ☰ efst og velja síðan Inneign.
3. Pikka á
Aðrar og velja síðan Mánaðarlegar tekjur.






Hvernig á að móttaka greiðslu


Ef heildarupphæð greiðslu sem safnast hefur á reikningnum þínum vegna seríu er 50 USD eða hærri (eða sambærileg upphæð í innlendum gjaldmiðli) verður greiðslan send til þín sjálfkrafa 15. hvers mánaðar.

Athugaðu:
1. Áður en þú færð greiðslu senda verður beðið um að þú setjir upp eða tengir fyrirliggjandi PayPal-reikning, fyllir út skattaeyðublað og staðfestir hver þú ert. Gættu þess að gefa upp nauðsynlegar upplýsingar því annars gætirðu fallið undir lögbundna staðgreiðslu og misst réttinn á þátttöku í seríu.
2. Í sumum lögsagnarumdæmum verða VSK-skráðir efnishöfundar að senda TikTok viðeigandi VSK-reikning. Til að einfalda kröfuna getur TikTok sent reikningana fyrir þína hönd, ef þú lest og samþykkt sjálfsrukkunarsamning TikTok. Ef þú ert skattskyldur einstaklingur verður beðið um að þú ljúkir við sjálfsrukkunarsamninginn áður en þú færð fyrstu greiðsluna senda.




Var þetta gagnlegt?