Fara í kafla
Endurnýjun á Fyrir þig-streyminu á TikTok • Hvernig á að endurnýja Fyrir þig-streymið
Endurnýja á Fyrir þig-streyminu á TikTok
Þú getur endurnýjað streymið Fyrir þig til að uppfæra tillögur að efni fyrir þig í streyminu.Þegar þú velur að endurnýja streymið sýnum við þér vinsælt efni.Ef þú bregst við efninu, til dæmis lækar það eða setur inn athugasemdir, hjálpar það til við að koma með tillögur í Fyrir þig-streyminu um efni sem þú hefur áhuga á.
Hvernig á að endurnýja Fyrir þig-streymið
Í stillingum þínum
1. Pikkaðu á Prófíll neðst í TikTok-appinu.
2. Pikkaðu á hnappinn Valmynd ☰ efst.
3. Pikkaðu á Stillingar og persónuvernd og síðan á Efnisstillingar.
4. Pikkaðu á Endurnýja Fyrir þig-streymið og fylgdu leiðbeiningunum á skjánum.Þegar búið er að endurnýja streymið er ekki hægt að afturkalla þá aðgerð.
Í Fyrir þig-streyminu (á völdum svæðum)
1. Farðu í streymið í TikTok-appinu, ýttu á færsluna og haltu niðri eða pikkaðu á hnappinn Deila.
2. Pikkaðu á Hvers vegna þetta vídeó.
3. Pikkaðu á Lagfæra Fyrir þig.
4. Pikkaðu á Endurnýja Fyrir þig-streymið og fylgdu leiðbeiningunum á skjánum.Þegar búið er að endurnýja streymið er ekki hægt að afturkalla þá aðgerð.
Hafðu í huga að ef þú velur að endurnýja Fyrir þig-streymið hefur aðgerðin aðeins áhrif á það streymi. Þetta hefur ekki áhrif á önnur svæði á TikTok, til dæmis Fylgir-streymið, prófílinn þinn, pósthólfið eða auglýsingar.