Hvers vegna er ekki verið að mæla með reikningnum mínum?

Fara í kafla


Hvað gerist ef reikningurinn þinn er ekki gjaldgengur í tillögur?Svona er hægt að senda áfrýjun vegna ógjaldgengs reiknings






Hvað gerist ef reikningurinn þinn er ekki gjaldgengur í tillögur?


Við hjá TikTok viljum tryggja að upplifun allra sé örugg og ánægjuleg.Þess vegna gætum við sett takmarkanir á efni sem ekki telst við hæfi þannig að það birtist ekki í Fyrir þig-streyminu og torveldað fólki að finna reikninga sem birta slíkt efni.

Ef þú birtir ítrekað efni sem er ekki viðeigandi fyrir Fyrir þig-streymið mun reikningurinn þinn og færslurnar þínar ekki birtast í Fyrir þig-streyminu og erfiðara verður að finna reikninginn og færslurnar í leit.

Við gætum fært reikninginn þinn aftur í góða stöðu hvenær sem er, háð því hversu mikið efni á reikningnum þínum er ekki viðeigandi fyrir Fyrir þig-streymið.Annars geturðu sent áfrýjun.






Svona er hægt að senda áfrýjun vegna ógjaldgengs reiknings


Ef reikningurinn þinn verður ógjaldgengur í tillögur munum við láta þig vita í pósthólfstilkynningum hjá þér og á prófílnum þínum þannig að þú áttir þig á því hvaða efni var flaggað og hvers vegna.

Ef þú telur að við höfum gert mistök þegar reikningur eða efni voru gerð ógjaldgeng í tillögur geturðu sent áfrýjun.

Svona sendir þú áfrýjun:
Pósthólf
1. Pikkaðu á Pósthólf neðst í TikTok-appinu.
2. Pikkaðu á tilkynninguna um að reikningurinn þinn sé ekki gjaldgengur í tillögur.
3. Pikkaðu á Skoða meira.
4. Farðu yfir ógjaldgengu myndböndin og pikkaðu svo á Áfrýja efst.

Prófíll
1. Pikkaðu á Prófíll neðst í TikTok-appinu.
2. Pikkaðu á tilkynninguna Ógjaldgengt í tillögur fyrir neðan notandanafnið þitt.
3. Farðu yfir ógjaldgengu myndböndin og pikkaðu svo á Áfrýja efst.

Var þetta gagnlegt?