Fjölskyldupörun

Fara í kafla


Hvað er fjölskyldupörun?  •  Hvernig á að setja upp fjölskyldupörun  •  Hvernig á að stjórna stillingum fyrir fjölskyldupörun 






Hvað er fjölskyldupörun?


Fjölskyldupörun á TikTok gerir foreldrum, forráðamanneskjum og unglingum kleift að sérsníða öryggisstillingar sínar út frá þörfum hvers og eins. Foreldri eða forráðamanneskja getur tengt TikTok-reikning sinn við reikning unglingsins og stillt stýringar, til dæmis:


Daglegan skjátíma
Ákveddu hve mikinn tíma unglingurinn getur notað á TikTok á hverjum degi. Fyrir unglinga á aldrinum 13 til 17 ára er sjálfgefið kveikt á þessari stillingu í eina klukkustund. Þú getur líka:
•  Stillt skjátímatakmörk unglingsins beint frá þínum eigin reikningi.
•  Stillt ein skjátímatakmörk fyrir TikTok sem gilda fyrir öll tæki unglingsins.
•  Fengið aðgangskóða með slembivali sem þú getur valið að slá inn eftir að unglingurinn klárar tíma sinn til að leyfa honum að fara aftur á TikTok.

Skjátímastjórnborð
Fáðu yfirlit yfir tíma unglingsins á TikTok, þar á meðal:
•  Uppsafnaðan tíma á hverjum degi síðustu fjórar vikur
•  Fjölda skipta sem unglingurinn opnaði appið á hverjum degi síðustu fjórar vikur.

Frekari upplýsingar um skjátíma á TikTok.

Slökkva á sprettitilkynningum
Ákveddu hvenær á að slökkva á sprettitilkynningum unglingsins. Sjálfgefið er kveikt á þessari stillingu:
•  Fyrir unglinga á aldrinum 13 til 15 ára er stilltur tími settur frá kl. 21:00 til kl. 8:00 að morgni.
•  Fyrir unglinga á aldrinum 16 til 17 ára er stilltur tími settur frá kl. 22:00 til kl. 8:00 að morgni.

Þú getur líka skipulagt viðbótartíma til að slökkva á tilkynningum unglingsins beint frá þínum eigin reikningi. Hafðu í huga að sjálfgefinn áætlaður tími hnekkir sérsniðnum tíma sem skarast við sjálfgefna tíma. Til dæmis, ef þú stillir fyrir 13 ára unglinginn áætlaðan tíma frá kl. 23:00 til kl. 7:00 að morgni, þá er sjálfgefinn tími frá kl. 21:00 til kl. 8:00 sem mun hnekkja stillingunni þinni.

Frekari upplýsingar um hvernig á að slökkva á sprettitilkynningum á TikTok.

Sía leitarorð
Veldu leitarorð eða myllumerki til að útiloka frá studdum streymum unglingsins á TikTok og stjórnaðu sýnileika leitarorðalistans þíns.

STEM-streymi
Ákveddu hvort unglingurinn geti skoðað STEM-streymið.


Athugaðu: STEM-streymið er ekki alls staðar í boði eins og er.

Takmörkunarstilling
Takmarkaðu birtingu efnis fyrir unglinginn þinn sem gæti verið óþægilegt eða óviðeigandi.


Virkni á tengdum reikningi
Fáðu tilkynningar um virkni unglingsins, til dæmis ef reikningarnir þínir verða aftengdir, með því að kveikja á Sérsniðnar uppfærslur og fleira.

Leit
Ákveddu hvort unglingurinn þinn geti leitað að vídeóum, myllumerkjum, vídeóum Í BEINNI og fleira á TikTok.

Sýnileiki
Ákveddu hvort reikningur unglingsins sé lokaður eða opinn. Með lokuðum reikningi getur unglingurinn samþykkt hverjir geta fylgst með sér og skoðað þeirra efni.

Mæla með reikningi við aðra
Ákveddu hvort hægt sé að mæla með reikningi unglingsins við aðra. Frekari upplýsingar um tillögur að reikningum á TikTok.

Bein skilaboð
Takmarkaðu hverjir mega senda skilaboð til unglingsins eða slökktu alveg á beinum skilaboðum.

Athugaðu: Bein skilaboð á TikTok eru bara í boði fyrir skráða reikningshafa sem eru 16 ára eða eldri.

Frekari upplýsingar um bein skilaboð á TikTok.

Lækað myndbönd
Ákveddu hver getur skoðað vídeó sem unglingurinn þinn lækaði.

Athugasemdir
Ákveddu hver getur skrifað athugasemdir við vídeó unglingsins þíns.

Athugaðu: fjölskyldupörunarstillingar TikTok eru aðeins í boði í TikTok-appinu og ekki í snjall- og tölvuvöfrum. Ef unglingurinn þinn opnar TikTok í vafra eða TikTok-appinu gætirðu viljað nota öryggisstillingarnar sem eru tiltækar í snjall- og tölvuvöfrum, til viðbótar við fjölskyldupörunarstillingar TikTok-appsins.


Til að setja upp skjátímatakmarkanir og takmarka TikTok-notkun unglingsins í snjall- og tölvuvöfrum skaltu fara í:
•  Fjölskyldumiðstöð Google fyrir Android og Chrome.
•  Foreldrastýringar Apple fyrir iPhone, iPad, Mac og Safari.






Hvernig á að setja upp fjölskyldupörun


Til að tengja reikninga foreldris og unglings:
1. Pikka á Prófíll neðst í TikTok-appinu.
2. Pikka á hnappinn Valmynd☰ efst og velja síðan Stillingar og persónuvernd.
3. Pikka á Fjölskyldupörun.
4. Pikka á Halda áfram.
5. Pikka á Foreldri eða Unglingur og pikka síðan á Áfram.
6. Fylgdu leiðbeiningunum til að tengja reikningana.






Hvernig á að stjórna stillingum fyrir fjölskyldupörun


Að stjórna stillingum fyrir fjölskyldupörun:
1. Pikka á Prófíll neðst í TikTok-appinu.
2. Pikka á hnappinn Valmynd☰ efst og velja síðan Stillingar og persónuvernd.
3. Pikka á Fjölskyldupörun.
4. Veldu reikninginn sem þú vilt hafa stjórn á og uppfærðu síðan stillingarnar eftir þörfum.


Var þetta gagnlegt?