Fara í kafla
Hvað er AI Alive á TikTok? • Gerð AI Alive-vídeós
Hvað er AI Alive á TikTok?
AI Alive gerir þér kleift að breyta myndunum þínum í vídeó með því að nota textaskipanir.Þú getur hlaðið AI Alive-vídeóum upp í Sögu til að deila með öðrum.
Hvernig hægt er að búa til AI Alive-vídeó
1. Í TikTok-appinu skaltu pikka á Prófíll neðst.
2. Pikkaðu á prófílmyndina þína.Þú getur líka pikkað á prófílmyndina þína í pósthólfinu eða í Fyrir þig- eða Fylgir-streymunum.
3. Taktu mynd eða pikkaðu á hnappinn Hlaða upp til að bæta mynd við úr tækinu þínu.
4. Pikkaðu á hnappinn AI Alive á hliðarsvæðinu.
5. Sláðu inn textaskipun eða veldu sjálfgefna og pikkaðu síðan á hnappinn Halda áfram.Ef þú ert að nota AI Alive í fyrsta sinn þarftu að gefa appinu aðgang til að búa til vídeóið.
6. Héðan geturðu:
༚ Pikkað á Sagan þín til að hlaða vídeóinu upp í Sögu.Þú getur líka pikkað á hnappinn AI Alive á hliðarsvæðinu til að búa vídeóið til aftur með nýrri skipun eða slökkt á AI Alive með stillingunni Nota AI Alive.
༚ Pikkað á hnappinn AI Alive á hliðarsvæðinu og síðan á Hætta efnisgerð ef þú vilt ekki lengur búa til AI Alive-vídeó.
Mikilvægt að vita um AI Alive-vídeó:
• Um eina mínútu tekur að búa til AI Alive-vídeó en þú getur notað aðra eiginleika á TikTok á meðan beðið er.Við látum þig vita þegar vídeóið er tilbúið.
• Þú hefur aðgang að tilbúnum AI Alive-vídeóum og þeim sem eru í vinnslu í drögum eða tilkynningum.
• AI Alive-drög renna út eftir sjö daga.