Þegar þú hefur útilokað einhvern á TikTok geturðu fundið lista yfir reikninga sem þú hefur útilokað í stillingunum.
Til að athuga hvaða reikninga þú hefur útilokað á TikTok skaltu:
1. Pikka á Prófíll neðst í TikTok-appinu.
2. Pikka á hnappinn Valmynd☰ efst og velja síðan Stillingar og persónuvernd.
3. Pikka á Persónuvernd.
4. Pikka á Útilokaðir reikningar. Þú gætir þurft að skruna niður til að finna það.