Fyrir foreldra og forráðaaðila

Farðu í kafla


Úrræði fyrir unglinga og fjölskyldur  •  Aldurskröfur á TikTok  •  Reikningar í eigu foreldris/forráðamanns  •  Stjórnaðu reikningi unglingsins þíns  •  Upplýsingar fyrir foreldra og forráðamanneskjur í Bandaríkjunum  






Úrræði fyrir unglinga og fjölskyldur


Þegar unglingar byrja að hasla sér völl á netinu hvetjum við fjölskyldur til að eiga áframhaldandi samtöl um upplifunina. Við viljum búa til umhverfi fyrir unglinga á TikTok sem er öruggt og þar sem þeim finnst þeir vera velkomnir og við erum með gögn fyrir þig sem auðvelda þér og unglingnum þínum að stjórna viðveru viðkomandi á netinu betur.


Fyrir frekari upplýsingar um stafrænt öryggi, þar á meðal öryggis- og persónuverndarverkfæri okkar, skoðaðu leiðbeiningar fyrir forráðaaðila í öryggismiðstöðinni okkar.







Aldurskröfur á TikTok


TikTok er í boði fyrir fólk sem er að minnsta kosti 13 ára (eða á öðrum aldri eins og tilgreint er í persónuverndarstefnu okkar og þjónustuskilmálum). Ef þú ert í Bandaríkjunum og átt barn sem er yngra en 13 ára getur þú fræðst meira um hvernig það getur búið til reikning til að hljóta TikTok-upplifun sem er sérstaklega hönnuð fyrir það.

Ef þú ert foreldri eða forráðamaður og þú vilt að TikTok eyði reikningi barns þíns undir 13 ára aldri geturðu haft samband við okkur í gegnum tilkynningareyðublaðið okkar á netinu. Ef þú hins vegar ert í Bandaríkjunum verður þú að hafa samband við okkur í gegnum þetta persónuverndarvefeyðublað.






Reikningar í eigu foreldris/forráðamanns


Við áttum okkur á því að sem foreldri eða forráðamaður kýst þú ef til vill að búa til reikning þar sem barnið þitt sem er yngra en 13 ára kemur fram. Til að komast hjá því að reikningnum verði eytt þarf að koma skýrt fram að hann er í umsjá fullorðins aðila, þar á meðal með þátttöku fullorðins aðila í framleiðslu efnisins. Ef svo er ekki munum við setja reikninginn í tímabundið bann og ef þér finnst við hafa gert mistök getur þú sent inn áfrýjun.






Stjórnaðu reikningi unglingsins þíns


Sem foreldri eða forráðamanneskja geturðu notað Fjölskyldupörun á TikTok til að stjórna öryggisstillingum fyrir unglinginn þinn byggt á þörfum viðkomandi.


Öllum á TikTok, þar á meðal unglingnum þínum, stendur til boða að afbirta reikninginn sinn með því að óvirkja eða eyða reikningnum varanlega.






Upplýsingar fyrir foreldra og forráðamanneskjur í Bandaríkjunum


Ef þú ert foreldri eða forráðamanneskja og ert staðsett(ur) í Connecticut, Flórída eða Texas í Bandaríkjunum geturðu haft samband varðandi tilteknar beiðnir í tengslum við reikning unglingsins þíns. Ef unglingurinn þinn er í Connecticut getur þú óskað eftir að reikningnum hans verði eytt eða hann afbirtur.

Ef unglingurinn þinn er í Flórída eða Texas geturðu beðið um að reikningi viðkomandi sé eytt, sótt eða breytt tilteknum upplýsingum varðandi reikninginn.

Áríðandi að vita:
•  Þú verður að velja Connecticut, Flórída eða Texas sem ríki til að halda áfram ferlinu fyrir beiðnina.
•  Við munum óska eftir sjálfsmynd af þér þar sem þú heldur á opinberum skilríkjum til að staðfesta auðkenni þitt. Þú getur hulið alla hluta skilríkjanna þinna sem þú átt lagalegan rétt á eða ber skylda til.
•  Um leið og við staðfestum beiðnina þína byrjum við eyðingarferlið á innsendum upplýsingum frá þér, þar á meðal sjálfmyndum og myndum af skilríkjunum þínum.
•  Ef unglingurinn þinn er í Connecticut munum við láta viðkomandi vita og afbirta eða eyða reikningnum.
•  Ef unglingurinn þinn er í Flórída eða Texas munum við láta unglinginn vita áður en við eyðum reikningnum, leiðréttum tilteknar upplýsingar eða veitum niðurhal á reikningsupplýsingum.


Var þetta gagnlegt?