AI Alive

Fara í kafla


Hvað er AI Alive á TikTok?  •  Hvernig hægt er að búa til AI Alive-vídeó 






Hvað er AI Alive á TikTok?


AI Alive gerir þér kleift að breyta myndunum þínum í vídeó með því að nota textaskipanir. Þú getur hlaðið AI Alive-vídeóum upp í Sögu til að deila með öðrum.


Áður en hafist er handa með AI Alive skaltu hafa í huga að:

•  Myndir sem þú hleður upp samræmist viðmiðunarreglum okkar fyrir samfélagið.

•  Þú ættir ekki að hlaða upp myndum af öðrum án samþykkis.

•  Þú berð alfarið ábyrgð á brotum á réttindum þriðju aðila í tengslum við myndir sem þú hleður upp, til dæmis ef þú hleður upp höfundarréttarvarinni mynd. Nánar í þjónustuskilmálum okkar.

•  Myndunum þínum verður hlaðið upp á þjón okkar á meðan við búum til AI Alive fyrir þig og þeim verður eytt eftir sjö daga.

•  AI Alive-drög renna út eftir sjö daga.






Hvernig hægt er að búa til AI Alive-vídeó


1. Pikkaðu á Prófíll neðst í TikTok-appinu.

2. Pikkaðu á prófílmyndina þína. Þú getur líka pikkað á prófílmyndina þína í pósthólfinu eða í Fyrir þig- eða Fylgir-streymunum.

3. Taktu mynd eða pikkaðu á hnappinn Hlaða upp til að bæta mynd við út tækinu þínu.

4. Pikkaðu á hnappinn AI Alive á hliðarsvæðinu.

5. Sláðu inn textaskipun eða veldu þá sem er sjálfgefin og pikkaðu síðan á hnappinn Halda áfram. Ef þú ert að nota AI Alive í fyrsta sinn þarftu að gefa appinu aðgang til að búa til vídeóið.

6. Héðan geturðu:

   ༚  Pikkað á hnappinn AI Alive á hliðarsvæðinu og pikkað síðan á Hætta myndun til að hætta að búa til AI Alive-vídeóið.

   ༚  Pikkað á Sagan þín til að hlaða vídeóinu upp í söguna þína. Þú getur líka pikkað á hnappinn AI Alive á hliðarsvæðinu til að búa myndina til aftur með nýrri skipun eða slökkva á AI Alive-stillingunni.


Mikilvægt að vita um AI Alive-vídeó:


•  Um eina mínútu tekur að búa til AI Alive-vídeó en þú getur notað aðra eiginleika á TikTok á meðan beðið er. Við látum þig vita þegar vídeóið er klárað.

•  Þú hefur aðgang að kláruðum AI Alive-vídeóum og þeim sem eru í vinnslu í drögum eða tilkynningum.




Var þetta gagnlegt?